Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Rausnarlegir jólasveinar

Grýla var með í för þegar gjöfin var afhent.

Jólasveinaþjónusta Skyrgáms kom færandi hendi til Hjálparstarfs kirkjunnar að venju og gaf 20% af veltu síðasta árs í hjálparstarfið. Grýla var með í för.

„Við lifðum af frostaveturinn mikla og getum því gefið góð ráð í kreppunni, jafnvel forsætisráðherrann gæti nýtt sér það” sagði Grýla þegar hún ásamt Skyrgámi og Bendt Harðarsyni afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar gjöf.

Grýla og Skyrgámur notuðu tækifærið til að gefa góð ráð og lásu upp aðgerðaráætlun sína í 6 liðum og endaði hún á því að Grýla söng með sinni fögru röddu síðasta liðinn sem var „Gleymdu ekki þínum minnsta bróður”.

Jólasveinaþjónusta Skyrgáms sem hefur starfað í 11 ár, hefur frá upphafi viljað starfa í anda jólanna og því látið gott af sér leiða. 20% af veltunni rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta samstarf hefur skilað á fimmtu milljón króna til þeirra sem þurfa hjálp til sjálfshjálpar.

Grýla, Skyrgámur og Bendt Harðarson afhentu rúmlega 720.000 krónur, á skrifstofu  Hjálparstarfs kirkjunnar. Framlagið í ár mun renna til helminga til aðstoðar innanlands og til vatnsverkefna í Afríku.

Til marks um að Jólasveinaþjónusta Skyrgáms leggur sitt af mörkum í kreppunni má geta þess að þjónusta þeirra hefur ekki hækkað í verði og þeir nota aðeins íslenskt sælgæti í nammipokum sem þeir dreifa.

Skyrgámur hefur verið aufúsugestur hjá fjölda fyrirtækja, leikskóla, einstaklinga og félagasamtaka.

 

Fylgiskjöl Stærð
Aðgerðaráætlun jólasveinanna 27 KB

Deila fréttinni


Nýjar fréttir