Þjóðmálanefnd kirkjunnar efnir til þriggja málþinga og kallar til samtals um efnahagslegt hrun og uppbyggingarstarf. Hvernig snýr hrunið að okkur? Hvar erum við stödd? Hver er framtíðarsýnin? Málþingin eru öllum opin. Þau verða haldin í Neskirkju 24. febrúar, 3. mars og 10. mars.
Dagskrá er sem hér segir:
24. febrúar: Hvernig snýr efnahagslegt hrun þjóðarinnar að mér og mínu umhverfi?
• Sif Vígþórsdóttir skólastjóri
• Pétur Markan framkvæmdastjóri stúdentaráðs
• Gentiana Collaku verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum í málefnum innflytjenda
• Sveinn Guðmarsson fjölmiðlamaður
Umræður
Fundarstjóri: Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarkona
Staður: Safnaðarheimili Neskirkju
Stund: Þriðjudagur 24. febrúar kl. 16.30 – 18.30
„Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa.“ (Mark 2. 21)
3. mars: Hvar erum við stödd? Samfélagsleg og guðfræðileg greining á ástandinu
• Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor
• Hjálmar Sveinsson fjölmiðlamaður
• Andrés Magnússon geðlæknir
• Kristín Þóra Harðardóttir lögfræðingur
Umræður
Fundarstjóri: sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir
Staður: Safnaðarheimili Neskirkju
Stund: Þriðjudagur 3. mars kl. 16.30 – 18.30
„Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi því þá sprengir vínið belgina og vínið ónýtist og belgirnir.“ (Matt 2.22)
10. mars: Hvert stefnum við? Horft til nálægrar framtíðar
• Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor
• Dr. Guðrún Pétursdóttir dósent
• Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
• Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands
Umræður
Fundarstjóri: Dr. Sigurður Árni Þórðarson
Staður: Safnaðarheimili Neskirkju
Stund: Þriðjudagur 10. mars kl. 16.30 – 18.30
„Öll spilling og ranglæti mun afmáð verða en heilindi halda velli um aldur.“ (Sír. 40.12)
Auglýsingaspjöld
Hægt er að sækja auglýsingaspjöld fyrir málþingin til að prenta út og hengja upp í kirkjunum.
| Fylgiskjöl | Stærð |
|---|---|
| Hvað segir kirkjan í kreppunni – A3 auglýsingaspjald | 540.53 KB |
| Hvað segir kirkjan í kreppunni – A4 auglýsingaspjald | 357.83 KB |
| Hvað segir kirkjan í kreppunni – A5 auglýsingaspjald | 354.21 KB |