Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Kyrrðarstundir með kristinni íhugun

Hafnarfjarðarkirkja

Sigríður Hrönn Sigurðardóttir guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur mun sjá um kyrrðarstundir með kristinni íhugun í Hafnarfjarðarkirkju á þriðjudagskvöldum kl. 17.30-18.30 fram á vorið. Kirkjan verður opin frá kl. 17. Fyrsta kyrrðarstundin verður þriðjudaginn 10. febrúar.

Hver stund hefst með stuttri fræðslu um hugmyndafræðina sem að baki liggur. Því næst eru slökunaræfingar sem kyrra hugann og veita hvíld. Þá fylgir sk. Jesú- íhugun sem er áhrifarík innlifun í frásögur úr lífi Jesú. Hrönn mun nýta sérvalda tónlist á kyrrðarstundunum.

Slík íhugun og tilbeiðsla miðla græðandi friði og hafa læknandi áhrif. Hrönn starfaði árum saman að kristniboði og hjúkrunarstörfum í Afríku. Hún veitir frekari upplýsingar um kyrrðarstundirnar í síma: 8923204.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir