Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Þjóðkirkjan og lýðræðið – ráðstefna í Skálholti

Hvernig hefur þjónusta kirkjunnar, guðfræði hennar og tengsl við menningu og þjóðfélag þróast á þeim rúma áratug sem er liðinn frá því ný lög um Þjóðkirkjuna tóku gildi?  Þessar spurningar verða teknar fyrir á ráðstefnunni Þjóðkirkjan og lýðræðið sem haldin verður í Skálholti 23.-24. ágúst.

Þar verður litið til hvernig staða, stjórn og starfshættir Þjóðkirkjunnar hafa þróast síðasta áratuginn, en lögin, sem tóku gildi í upphafi árs 1998, miðuðu m.a. að því að gera Þjóðkirkjuna sjálfstæðari sem trúfélag og takmarka aðkomu ríkisvaldsins að málefnum hennar. 

Skálholt, Kjalarnessprófastsdæmi og Guðfræðistofnun standa að ráðstefnunni. Meginmarkmið hennar er að efna til gagnrýninnar og uppbyggilegrar umræðu um Þjóðkirkjuna í upphafi nýrrar aldar og líta til framtíðar með eflingu lýðræðis að leiðarljósi.

Nánar

Um málþingið

Dagskrá málþingsins

Deila fréttinni


Nýjar fréttir