Finnar urðu fyrir gríðarlegu efnahagsáfalli á 10 áratug síðustu aldar. Þetta var mesta kreppa sem gengið hafði yfir landið síðan í lok síðari heimsstyrjaldar. Gengið féll, atvinnuleysi fór frá þremur prósentum yfir tuttugu prósent. Kirkjan brást við með ýmsum hætti, bæði með andlegum, félagslegum og fjárhagslegum stuðningi við fólk.
Dr. Heikki Hiilamo segir frá kreppunni og kirkjunni í Finnlandi og hvað af því megi læra í viðtali í vefsjónvarpi kirkjunnar. Hann flytur fyrirlestur um þetta efni í Grensáskirkju í dag.