Sunnudaginn 20. september sl. stóð ÆSKR fyrir poppmessu í Lindakirkju í Kópavogi. MEME movie, sem er æskulýðsfélag Digraneskirkju, gerði sjónvarpsfrétt um messuna sem hægt er að skoða hér á vefnum.
„Þessi messa var mjög hefðbundin í forminu, en við leyfðum okkur að vera svolítið frjálslegri og tónlistin var nær unglingunum. Þarna var fullskipuð hljómsveit, hljómsveitin Revelation,“ segir sr. Guðni Már Harðarson m.a. í sjónvarpsviðtalinu.