Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Vefurinn barnatrú.is opnaður í sunnudagaskólanum

barnatru-mynd.jpg

Sunnudagskólinn, barnastarf kirkjunnar, hefst í flestum kirkjum landsins um helgina. Í tilefni af því verður opnaður nýr vefur fyrir börn og foreldra þar sem hægt er að fylgjast með barnastarfi kirkjunnar, læra söngva, sækja sér fræðslu og skemmtiefni.

Að sögn Elínar Elísabetar Jóhannsdóttur, verkefnisstjóra á Biskupsstofu, er þetta liður í því að styðja foreldra og uppalendur í trúaruppeldi barna sinna. Á vefnum eru einnig upplýsingar um það hvar og hvenær barnastarfið fer fram. Vefslóðin er www.barnatru.is.

Vefurinn verður formlega opnaður í sunnudagaskóla Digraneskirkju, sunnudaginn 6. september kl. 11.00.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir