„Ojjj, hvernig er hægt að drekka svona vatn,“ sagði eitt fermingarbarnið þegar það sá myndir af drykkjarvatni í Úganda. Fermingarbörn úr 67 sóknum í öllum landshlutum ganga í hús mánudaginn 9. og þriðjudaginn 10. nóvember milli kl 17:30 og 21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í fjórum löndum Afríku: Mósambík, Malaví, Úganda og Eþíópíu.
Starfsfólk kirkjunnar fræðir um 3000 fermingarbörn um aðstæður í fátækum löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni. Um leið fræðast fermingarbörnin um árangur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar sem þau svo safna til. Hvernig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem veita hreint vatn sem gjörbreytir lífinu til hins betra. Með þessu fá fermingarbörnin tækifæri til að láta til sín taka og gefa Íslendingum tækifæri til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni.
Þetta er í 11. sinn sem söfnunin er haldin. Í fyrra söfnuðu fermingarbörn 7,7 milljónum króna. Ef það sem safnaðist þá er umreiknað miðað við kostnað við einn brunn sem þjónað getur eitt þúsund manns, þá fengu fyrir það 38.000 manns aðgang að hreinu vatni til frambúðar.
