Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Sameiningar prestakalla og prófastsdæma

Atkvæðagreiða á kirkjuþingi 2009

Á kirkjuþingi 2009, sem lauk í gær,  voru samþykktar átta sameiningar prestakalla, sameiningar fimm prófastsdæma í tvö og tilfærslur þriggja prestakalla milli prófastsdæma.

 
Samþykktir um sameiningu prestakalla taka gildi 30. nóvember en aðeins tvær koma til framkvæmda þá þar sem sóknarprestar í öðru þeirra prestakalla er sameinast eiga hafa látið af störfum. Þetta eru eftirfarandi prestaköll:
 
Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall í Árnesprófastsdæmi sameinast. Heiti hins sameinaða prestakalls verður Selfossprestakall.
Samþykktin felur í sér að sóknarprestur Hraungerðisprestakalls verður sóknarprestur á Selfossi. Í ljósi stærðar prestakallsins og þjónustuþunga verður einnig auglýst staða prests í prestakallið.
 
Ólafsvíkurprestakall og Ingjaldshólsprestakall í Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
sameinast. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall. Prestssetur verður í Ólafsvík. Þar sem sóknarprestur í Ólafsvík er að láta af störfum þar verður sóknarprestur Ingjaldshólsprestakall sóknarprestur hins sameinaða prestakalls.
 
Samþykkt var að sameina fimm prófastsdæmi í tvö og tekur sú sameining gildi 30. nóvember næstkomandi. Hér er um að ræða eftirfarandi samþykktir:
 
Húnavatns-og Skagafjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.
 
Skaftafells-, Rangárvalla- og Árnessprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Suðurprófastsdæmi.
 
Samþykkt var að Vestmannaeyjaprestakall í Kjalarnessprófastsdæmi tilheyri hinu nýja Suðurprófastsdæmi. Siglufjarðarprestakall í Skagafjarðarprófastsdæmi tilheyri Eyjafjarðarprófastsdæmi og Hólmavíkurprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi tilheyri Vestfjarðarprófastsdæmi.
 
Í Rangárvallaprófastsdæmi var samþykkt að bæirnir Ártún, Bakkakot 1 og 2, Ármót, Fróðholt og Uxahryggur 1 og 2 sem tilheyra Oddasókn tilheyri Akureyjarsókn. Breyting þessi tekur gildi frá 30. nóvember næstkomandi.
 
Sameiningar prestakalla sem koma til framkvæmda við starfslok presta eru eftirfarandi:
 
Skaftafellsprófastsdæmi
Kálfafellsstaðarprestakall sameinist Bjarnanesprestakalli. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Bjarnanesprestakall. Prestssetur verði á Höfn.
Samþykkt var ákvæði til bráðabirgða gerir Biskupi Íslands heimilt að ráða héraðsprest í allt að 50% starf er hafi sérstakar skyldur við Bjarnanesprestakall.
 
Rangárvallaprófastsdæmi
Holtsprestakall sameinist Víkurprestakalli og Breiðabólstaðarprestakalli. Ásólfsskála-, Eyvindarhóla- og Stóra- Dalssóknir tilheyri Víkurprestakalli, Skaftafellsprófastsdæmi. Akureyjar- og Krosssóknir tilheyri Breiðabólsstaðarprestakalli, Rangárvallaprófastsdæmi. Þessi tvö prófastsdæmi munu verða hluti hins nýja Suðurprófastsdæmis.
 
Árnessprófastsdæmi
Mosfellsprestakall og Skálholtsprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Skálholtsprestakall. Prestssetur verði í Skálholti.
 
Stóra-Núpsprestakall og Hrunaprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Hrunaprestakall. Prestssetur verði að Hruna.
 
Vestfjarðaprófastsdæmi
Staðarprestakall og Þingeyrarprestakall, sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Þingeyrarprestakall. Prestssetur verði á Þingeyri.
Súðavíkur,- Vatnsfjarðar- og Ögursóknir tilheyri Holtsprestakalli.
 
Eyjafjarðarprófastsdæmi 
Hríseyjarprestakall og Möðruvallaprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Möðruvallaprestakall. Prestssetur verði að Möðruvöllum í Hörgárdal.
 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir