Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Embætti prests í Akureyrarprestakalli auglýst

Akureyrarkirkja

Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Akureyrarprestakalli, Eyjafjarðarprófastsdæmi frá 1. júní 2010.

Biskup Íslands skipar í embætti presta til fimm ára.

Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir menntun sinni, starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.

Valnefnd velur prest skv. starfsreglum um presta nr.  735/1998  .

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 20. gr. starfsreglna um presta nr.  735/1998 .

Um launakjör fer skv. ákvörðun kjararáðs.

Um starfið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 sem og starfsreglur er kirkjuþing setur.

Prestssetur fylgir ekki prestsembættinu.

Umsóknarfrestur rennur út 18. mars 2010.

Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.

Embætti presta eru auglýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta breytingu á störfum sínum og verksviði á skipunartímanum sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Vísað er til laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Nánari upplýsingar um embættið, starfskjör, lög og reglur sem um starfið gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s.  528 4000 .

Deila fréttinni


Nýjar fréttir