Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Glerárprestakalli, Eyjafjarðarprófastsdæmi frá 1. júní 2010.
- Biskup Íslands skipar í embætti presta til fimm ára.
- Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir menntun sinni, starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
- Valnefnd velur prest skv. starfsreglum um presta nr. 735/1998 .
- Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 20. gr. starfsreglna um presta nr. 735/1998 .
- Um launakjör fer skv. ákvörðun kjararáðs.
- Um starfið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 sem og starfsreglur er kirkjuþing setur.
- Prestssetur fylgir ekki prestsembættinu.
- Umsóknarfrestur rennur út 29. apríl 2010.
- Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Embætti presta eru auglýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta breytingu á störfum sínum og verksviði á skipunartímanum sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Vísað er til laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Nánari upplýsingar um embættið, starfskjör, lög og reglur sem um starfið gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 528 4000 .
