Þriðjudaginn 9.febrúar kl. 18.00 verður haldið í Safnaðarheimili Breiðholtskirkju síðdegisnámskeið undir yfirskriftinni Bænin – farvegur blessunar í lífi og starfi.
Fjallað verður um bænin bæði út frá Biblíunni og kristinni trúarhefð. Kynntar verða ýmsar aðferðir bænalífsins og hvernig við getum eignast innihaldsríkt bænalíf í önnum og amstri dagsins. Einnig verður fjallað um hvernig bænin og bænalíf tengist starfi okkar í kirkjunni. Umsjón með námskeiðinu hefur séra Bryndís Malla Elídóttir héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Námskeiðið hefst það kl. 18.00 og stendur til 21.00. Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið kristin.arnardottir@kirkjan.is eða í síma 528 4000
Námskeiðið er í röð námskeiða sem haldin eru með reglulegu millibili á vegum Reykjavíkurprófastsdæma og Fræðslusviðs Biskupsstofu, Starfs- og leikmannaskólans undir heitinu Að starfa í kirkjunni. Þess má geta að í apríl verður síðan boðið upp á samskonar námskeið um Biblíuna. Umsjón með því námskeiði hefur séra María Ágústdóttir héraðsprestur.
