Síðustu árin hefur iðrun ekki verið í tísku á Íslandi. Ísland hefur verið of hrokafullt fyrir iðrun. Hér áttu menn ekki að sjá eftir neinu. Hér áttu menn að halda áfram og líta ekki um öxl. Hér áttu menn helst ekki að gera mistök – og ef þeir gerðu þau, áttu þeir helst ekki að viðurkenna þau.
