Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Kjördæmisfundir í kjördæmum kirkjuþings

Kirkjuþing - atkvæðagreiðsla

Kjörstjórn við kirkjuþingskjör 2010 boðar hér með til kjördæmisfunda í kjördæmum kirkjuþings, sbr. 5. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings nr. 234/2006. 

Kjördæmisfundum er ætlað að ganga frá tilnefningum á leikmönnum til kjörs til kirkjuþings og eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru á kjördæmisfundi. 

Kjördæmisfundir í kjördæmum kirkjuþings, verða haldnir á þeim stöðum og tímum sem greinir í þessari auglýsingu. 

Fundinn sækja formaður, eða einn fulltrúi úr sóknarnefnd hverrar sóknar í kjördæminu. Þá er leikmönnum sem njóta kosningarréttar í kjördæminu heimilt að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Enn fremur eiga þeir sem tilnefndir hafa verið af sóknarnefndum til kjörs kost á að mæta á fundinn til að kynna sig.  

Dagskrá hvers fundar er sem hér segir: 

  1. Formaður sóknarnefndar eða fulltrúi úr sóknarnefnd þeirrar sóknar kjördæmisins, þar sem flestir þjóðkirkjumenn eru, setur fundinn og fram fer kosning fundarstjóra og ritara. 
  2. Fundarstjóri kallar eftir og kynnir tilnefningar sóknarnefnda kjördæmisins á kjörgengum leikmönnum til kjörs. 
  3. Fram fer kynning á þeim sem sóknarnefndir hafa tilnefnt til kjörs. 
  4. Fundurinn tilnefnir kjörgenga leikmenn, hafi ekki nægilega margar tilnefningar borist frá sóknarnefndum í kjördæminu.
  5. Leynileg kosning, ef fleiri eru tilnefndir en tilnefna skal í kjördæminu. Hver sóknarnefnd hefur eitt atkvæði. 
  6. Fundarslit. 

Vakin er athygli á því að sóknarnefndir geta tilnefnt kjörgenga leikmenn til kjörs fram að kjördæmisfundi og skilar formaður eða fulltrúi sóknarnefndar tilnefningunni á kjördæmisfundinum. 

Fundarstaðir og fundartímar

1. kjördæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.

Fundartími: Miðvikudagur 10. mars kl. 17:00.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg
Formaður sóknarnefndar Nessóknar Ingibjörg R. Guðmundsdóttir setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber 12 kjörgenga leikmenn.  

2. kjördæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. 

Fundartími: Fimmtudagur 11. mars kl. 17:30.
Fundarstaður: Safnaðarheimil Kársnessóknar.
Fulltrúi Grafarvogssóknar, Jón G. Hauksson, setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber 12 kjörgenga leikmenn.   

3. kjördæmi, Kjalarnessprófastsdæmi. 

Fundartími: Fimmtudagur 11. mars kl. 17:00.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Hafnafjarðarkirkju. 
Varaformaður sóknarnefndar Hafnarfjarðarsóknar, Jónína Steingrímsdóttir setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber 12 kjörgenga leikmenn.  

4. kjördæmi, Borgarfjarðar,- Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi. 

Fundartími: Fimmtudagur 11. mars kl. 20:00.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Borgarnesskirkju, Borgarnesi. 
Formaður sóknarnefndar Akranessóknar, Þjóðbjörn Hannesson setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber sex kjörgenga leikmenn.  

5. kjördæmi, Vestfjarðaprófastsdæmi. 

Fundartími: Þriðjudagur 9. mars kl 20:00.
Fundarstaður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Formaður sóknarnefndar Ísafjarðarsóknar, Helga Friðriksdóttir setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber sex kjörgenga leikmenn.  

6. kjördæmi, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. 

Fundartími: Mánudagur 8. mars kl. 17:00.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju.
Formaður Sauðárkrókssóknar, Brynjar Pálsson, setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber sex kjörgenga leikmenn. 

7. kjördæmi, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. 

Fundartími: Laugardagur 13. mars n.k. kl 10:00.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, Akureyri. 
Formaður Akureyrarsóknar Rafn Sveinsson setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber átta kjörgenga leikmenn.  

8. kjördæmi, Múla- og Austfjarðaprófastsdæmi. 

Fundartími: Föstudagur 12. mars n.k. kl 20.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju
Formaður Egilsstaðasóknar, Hjálmar Jóelsson, setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber sex kjörgenga leikmenn. 

9. kjördæmi, Suðurprófastsdæmi. 

Fundartími: Laugardagur 13. mars kl. 14.30 (eða að loknum héraðsfundi).
Fundarstaður: Árhús, Hellu. 
Formaður Selfossóknar, Eysteinn Jónasson setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara. 
Tilnefna ber átta kjörgenga leikmenn. 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir