Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Messa og örþing um jafnrétti

Bleik súpa verður borin fram eftir messu.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er 8. mars og í fyrra var haldinn Bleikur dagur í Guðríðarkirkju þann sunnudag til að minnast baráttu fyrir mannréttindum kvenna til jafns við karla. Í ár heldur Guðríðarkirkja, Bleikan dag fyrsta sunnudag eftir baráttudag kvenna, sem er 14. mars. Messa verður kl. 11, boðið upp á súpu og síðan efnt til örþings strax á eftir. Guðríðarkirkja er á Kirkjustétt 8 í Grafarholti í Reykjavík.

Prédikari í messunni verður Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor við Guðfræðideild Háskóla Íslands,  Dr.Sigríður Guðmarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt fleiri prestvígðum konum og flestir sálmarnir sem sungnir verða eru eftir konur. Organisti er Ester Ólafsdóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Boðið verður upp á súpu eftir messu og þegar skálin hefur verið tæmd upphefst örþing til minningar um ameríska kvennaguðfræðinginn og heimspekinginn Mary Daly sem lést í byrjun janúar. Daly var frumkvöðull í kvennaguðfræði og mikil baráttukona fyrir réttindum kvenna. Erindin verða stutt og hnitmiðuð og ekkert allt of hátimbruð og dagskrá ætti að ljúka kl. 13:45.

Allir sem hafa áhuga á jafnrétti og langar til að kynna sér femíníska guðfræðigagnrýni eru eindregið hvattir til að mæta í messu, súpu og/eða örþing. Fundarstjóri örþingsins verður Laufey Brá Jónsdóttir leikari, BA í guðfræði og meistaranemi í mannauðsstjórnun. Frummælendur á örþinginu eru:

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir dósent við Guðfræðideild HÍ sem fjallar um Mary Daly og kenningar um ofbeldi gegn konum.
Hildur Björk Hörpudóttir, BA í guðfræði og meistaranemi í mannauðsstjórnun og guðfræði fjallar um brúna sem Daly byggði milli femínistanna og guðfræðinnar.
Sr. Hanna María Pétursdóttir fjallar um lokaritgerð sína í guðfræði um Mary Daly 1981 sem ruddi braut íslenskra Dalytúlkana.
Dr. Sigríður Guðmarsdóttir fjallar um Daly í ljósi nýrra femínískra kenninga svo sem kenninga Judith Butler.
 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir