Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Nýr erkibiskup kjörinn í Finnlandi

Kari Mäkinen

Kari Mäkinen biskup í Turku/Åbo var í dag kjörinn erkibiskup í Finnlandi. Hann tekur við af Jukka Parma þegar sá síðarnefndi lætur af embætti í júní.

Kari Mäkinen sem er 55 ára sigraði í annarri umferð erkibiskupskjörsins í Finnlandi, fékk 593 atkvæði á móti 582 hjá mótherjanum, Miika Ruokanen, prófessor í trúfræði við Helsinkiháskóla. Sjö voru í fyrstu umferð.

Hinn nýi erkibiskup verður settur í embætti í dómkirkjunni í Turku þann 6. júní næstkomandi.

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir