Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Rauðakrosshúsið eins árs

Þrír sjálfboðaliðar við veisluborðið.

Föstudaginn 5. mars var haldið upp á að eitt ár var liðið síðan Rauðakrosshúsið var opnað. Þegar atvinnuleysi jókst mikið kom fram hugmynd að þjóðkirkjan ætti að opna miðstöð sem gæti verið á svipuðum nótum og Miðstöð fólks í atvinnuleit var á 10. áratugnum. Á sama tíma var Rauði krossinn að vinna með svipaða hugmynd.

Ákveðið var að þróa hugmyndina í sameiningu og niðurstaðan var sú að Rauði krossinn opnaði miðstöð og að kirkjan hefði dagskrá reglulega og að prestur eða djákni væri tvo tíma á dag með viðveru og reiðubúinn til viðtals. Húsið er opið mánudaga til föstudaga kl 12-17. Gestum hefur fjölgað og það sýnir að áfram þörf fyrir þetta starf.

Nokkur orð frá gestum Rauðakrosshússins:

„Þegar maður er í atvinnuleit  þarf maður að búa sér til daglega reglu og hafa verkefni yfir daginn. Ég skoða dagskrá hússins og tek þátt í því sem mér finnst áhugavert.“
„Það er góður og skemmtilegur andi í húsinu.“
„Hér eru börn velkomin.“

Sjá nánar á www.raudakrosshusid.is

Deila fréttinni


Nýjar fréttir