Á dögunum stóð ÆSKÞ fyrir fræðslu um rafrænt einelti þar sem Kristrún Birgisdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur hélt erindi, annars vegar í Háteigskirkju og hins vegar í Glerárkirkju.
Í máli hennar kom fram að rafrænt einelt er eins og annað einelti slæmt fyrir þolendur jafnt sem gerendur, en það á sér hliðar sem erfiðara er að taka á þar sem það fer fram í gegnum farsíma eða netið án þess að foreldrar né skóli verðir varir við það.
