Það var góð stemning í poppmessu í Vopnafjarðarkirkju á æskuýðsdaginn. Börnin í prestakallinu tóku virkan þátt í guðsþjónustunni og undirbúningi hennar.
Börn úr tónlistarskólanum sáu um tónlistarflutning ásamt hljómsveitinni Kleópötru. Börn úr 10-12 ára starfinu sýndu helgileikinn “Lát trú þína bera ávöxt”, sem var þema æskulýðsdagsins í ár. Þá lásu fermingarbörn ritningarlestra og voru með bænir.
Unglingarnir í æskulýðsfélagi Hofsprestakalls – Kýrosi – bökuðu kökur fyrir kaffisölu og sáu alfarið um kaffisöluna og skreyttu kirkjunnar og safnaðarheimilið með litríkum borðum, greinum, pappír, ávöxtum og greinum.
Árangur kaffisölunnar var líka góður, en það söfnuðust 50.000.- kr. til Hjálparstarfs kirkjunnar meðal barna í Úganda sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi.
Guðsþjónustan var einstök stund með fjölbreyttri tónlist og virkri þátttöku barna, unglinga og kirkjufólks. Í lokin sungu öll börnin með hljómsveitinni lagið “Hallelúja” eftir Leonard Cohen og tóku vel undir. Reynslunni er best lýst með orðum eins kirkjugestsins sem sagði: “Ég vildi að lagið hefði verið miklu lengra.”
Það er óhætt að segja að samstaða, jákvæðni og samvinna barnanna hafi skinið skært þegar þau uppskáru svo ríkulega á sunnudaginn í þakklæti og gleði kirkjufólksins. Það má með sanni segja að trú þeirra hafi borið ríkulegan ávöxt. Eða eins og einn unglingurinn sagði: „Hvenær er messað næst?“
