Sr. Gunnþór Ingason leiddi inn í umræðu miðvikudagsins um hlutverk hirðisins á tímum hruns með biblíulestri að morgni. Hann leitaði fanga í spádómsbók Esekíels og herleiðingu Ísraelsmanna til Babýlon og túlkun spámannsins á samtíma sínum.
Gættum við sem hirðar í kirkju Krists að hættumerkjum og greindum við siðrofið? spyr Gunnþór. Og í greiningu á uppbyggingarferlinu sækir hann einnig í keltneskan arf og leggur til uppskrift að iðrunarferli þar sem sálarvinur leiðbeinir hinum brotlega.
Lesa grein sr. Gunnþórs Ingasonar
| Fylgiskjöl | Stærð |
|---|---|
| Hrun og hjálpræð1 2 1.doc | 60.5 KB |
