Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Láttu, Drottinn, birta af degi á ný yfir Íslandi

Gosið í Eyjafjallajökli. Mynd: Þórir Guðmundsson

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent prestum Þjóðkirkjunnar bréf þar sem hann mælist til að í messum komandi sunnudaga verði beðið fyrir þeim sem búa við ógnir eldgossins í Eyjafjallajökli.

Með bréfinu fylgir eftirfarandi bæn:

Guð þú sem ert oss hæli og styrkur og örugg hjálp í nauðum. Vér minnumst fyrir augliti þínu þeirra sem lifa við ógn og skelfingu eldsumbrotanna og þurfa að glíma við afleiðingar þeirra. Miskunna þeim sem horfa á land sínu og búi, búsmala, gróðri, afkomu sinni, heimili og heilsu ógnað.  Líkna, hjálpa, blessa þau öll, líknsami Guð, tendra hjá þeim ljósið þitt er lýsi upp allan sorta, veit þeim huggun, styrk og kjark andspænis allri vá, lát þau finna vernd þína og hlífð í öllum háska. Veit visku og styrk þeim sem stjórna almannavörnum og leggja sig fram um að hjálpa og bjarga, láttu anda þinn leiða þau. Láttu, Drottinn, birta af degi á ný yfir Íslandi. Fyrir Jesú Krist, Drottinn vorn.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir