Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í guðfræði- og trúarbragðadeild HÍ, fjallaði um mannskilning farsæls samfélags í erindi á prestastefnu. Hún minnti í upphafi á að sú spurning hvort eðlilegt sé og sjálfsagt að hver og einn breyti í eigin þágu og stuðli að velgengi sjálfs sín fyrst, sé hreint ekki ný af nálinni. Hana hafi Sókrates og Sófistarnir tekist á um á sínum tíma og töldu Sófistar sjálfgefið að svarið væri já.
Hvers konar samfélag var það sem hafði skapast hér á landi, hvað einkenndi það, á hverju byggði það? spurði Sólveig Anna og leitaði svara í mannskilning, bæði þeim mannskilningi sem ríkti í samfélagi okkar og hefur verið okkur til óheilla en einnig þeim mannskilningi sem farsælla væri að byggja á.
Dr. Sólveig Anna tefldi fram gagnrýni á vestrænan mannskilning og á homo economicus, eins og mannskilningur hagfræðinnar er stundum kallaður. „…sú menning sem virðir ekki þörf fólks fyrir tengsl en heldur þess í stað á loft fullyrðingum um sjálflægt og gráðugt eðli þar sem hver sé sjálfum sér næstur – hún rænir fólk mikilvægum gildum sem halda samfélaginu saman.“
Í samfélagi þroskast manneskjur sem einstaklingar. Og þar liggur hlutverk kirkjunnar í þessu samhengi.
„Það er mikilvægt fyrir líf okkar sem siðferðilegra vera að við þekkjum til frásagna í siðmenningu okkar því þær geta hjálpað okkar að þroskast, mynda tengsl, byggja upp heildstæða sjálfsmynd og staðsetja okkur í samhengi við aðrar manneskjur, við samfélagið og heiminn sem slíkan. Margar slíkar frásagnir eru til staðar í menningu okkar, þar á meðal í Biblíunni. Við þurfum á slíkum frásögnum að halda einmitt nú þegar einstaklingshyggja kapítalismans hefur náð að festa sig svo rækilega í sessi í samfélagi okkar að stórtjón hefur hlotist af. Að leita til Biblíunnar eftir siðferðilegri leiðsögn varðandi farsælt samfélag fjallar þá ekki um það að sækja þangað ytra regluverk, boð og bönn, heldur fremur að leita að tilvistarlegum samhljómi í eigin lífi með því lífi sem þar er dregið upp í margvíslegum frásögum. “
Lesa fyrirlestur dr. Sólveigar Önnu.
| Fylgiskjöl | Stærð |
|---|---|
| Prestastefna 2010 Sólveig Anna Bóasdóttir.doc | 54 KB |
