125 prestar og djáknar eru skráðir á Prestastefnu sem hefst með messu í Vídalínskirkju í Garðabæ, kl. 18 í dag, þriðjudaginn 27. apríl. Sr. Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir, prófastur á Eiðum, predikar og prestar Garðaprestakalls þjóna fyrir altari ásamt biskupi Íslands og vígslubiskupum.
Í kvöld kl. 21 flytur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, yfirlitsræðu sína.
Miðvikudaginn 28. apríl verður umræða um samfélagsmál undir yfirskriftinni Uppgjör og uppbygging. Umfjölluninni er skipt í tvo hluta. Kl. 10:30 munu Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaholtsskóla, og Vilborg Oddsdóttir, verkefnastjóri hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, fjalla um aðstæður barna og ungra fjölskyldna. Eftir hádegi, kl. 13:15 munu dr. Vilhjálmur Árnason, prófessor, og dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent, fjalla um siðferði og samfélag. Á dagskrá þann dag eru einnig umræður um hirðis- og leiðtogahlutverkið á tímum uppgjörs og uppbyggingar og um sérhæfða eftirfylgd í söfnuðum þjóðkirkjunnar.
Fimmtudaginn 29. apríl verður rætt um nýtt frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum og um mat á stefnumótun þjóðkirkjunnar 2004-2010. Prestastefnu lýkur kl. 14:30 á fimmtudag með messu í Vídalínskirkju.
Um Prestastefnu
Um prestastefnu segir í lögum um stöðu stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, 6. kafla, 28. gr.: Biskup Íslands boðar til almennrar prestastefnu og er forseti hennar.
Á prestastefnu eiga setu og atkvæðisrétt vígslubiskupar og allir starfandi þjóðkirkjuprestar skv. 33. gr., svo og fastir kennarar guðfræðideildar Háskóla Íslands með guðfræðimenntun og guðfræðingar sem gegna föstum störfum á vegum þjóðkirkjunnar. Aðrir prestar og guðfræðingar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti enda séu þeir innan safnaða er starfa á játningargrundvelli evangelísk-lúterskrar kirkju.
Á prestastefnu skal fjalla um málefni prestastéttarinnar, svo og önnur kirkjuleg málefni. Prestastefna hefur tillögu- og umsagnarrétt um mál er varða kenningu kirkjunnar og helgisiði og annars heyra undir biskup og kirkjuþing, sbr. 10., 11. og 20. gr.
Þjónusta við fjölmiðla á prestastefnu
Erindi, fréttir og myndir af prestastefnu verða sett inn á vef Þjóðkirkjunnar http://kirkjan.is/prestastefna. Þar er dagskrá stefnunnar einnig að finna.
Upplýsingar til fjölmiðla á prestastefnu veita:
- Árni Svanur Daníelsson, gsm. 856 1509, arni.svanur.danielsson@kirkjan.is
- Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, gsm 856 1570, steinunn.bjornsdottir@kirkjan.is
| Fylgiskjöl | Stærð |
|---|---|
| Prestastefna 2010, fréttatilkynning | 119.76 KB |
| Prestastefna 2010, dagskrá | 246.15 KB |
