Samráðshópur áfallahjálpar sem í eiga sæti fulltrúar Þjóðkirkjunnar, Rauða kross Íslands, landslæknisembættisins, Almannavarna og Landspítalans hélt fræðslufund í safnaðarheimilinu á Hellu vegna áhrifa gossins í Eyjafjallajökli á fólk á svæðinu. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari er fulltrúi Þjóðkirkjunnar í hópnum.
Til fundarins mættu prestar, starfsfólk heilbrigðisstétta á svæðinu, læknar og hjúkrunarfólk, og fulltrúar RKÍ.
Samráðshópurinn tók einnig þátt í almennum fundi með íbúum sem haldinn var í Heimalandi.
Annir eru hjá prestum á svæðinu sem einnig þurfa sumir að glíma við áhrif öskufallsins á tún sín og skepnur. Samkvæmt skipulagi hópslysanefndar Þjóðkirkjunnar er prófasturinn, sr. Halldóra Þorvarðardóttir, tengiliður kirkjunnar á svæðinu og skipuleggur aðstoð við þjónustu prestanna eftir þörfum.
_0.frettir.jpg)