Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Sumardagurinn fyrsti undir Eyjafjöllum

Öskufall í Vík.ljósm. Sveinn Guðmarsson

Öskufallið undir Eyjafjöllum veldur  miklu álagi hjá þeim sem fyrir því verða. Prestar svæðsins taka höndum saman við að sinna sóknarbörnum á staðnum. Sr. Halldór Gunnarsson í Holti hefur ekki farið í varhluta af öskunni á sínum bæ, en hann hefur einnig heimsótt alla bæi þar sem askan liggur yfir í sinni sókn. Sumarkomu verður þó fagnað á svæðinu. Samkoma verður fyrir börn og fullorðna í Gunnarshólma í dag og guðsþjónusta í Stóradalskirkju í kvöld.

Að sögn sr. Axels Árnasonar Njarðvík, héraðsprests, sem kom í  Heimaland og hitti á sr. Halldóri í Holti í gær er greinanlegt að þungt andlegt álag hvílir á fólki mitt í miðjum hamförum náttúrunnar. Þarna reyni á samstarf margra aðila, sem og fagfólk af  ýmsum sviðum samfélagsins, til stuðnings. 

Þegar búið er að tryggja öryggi manna og skepna gagnvart öskunni blasir við ástand sem enginn veit hve lengi varir og það tekur mikið á. Sr. Axel segir að erfitt sé fyrir þá sem standa utan við að gera sér grein fyrir álaginu ofan á allt annað sem lagst hefur yfir land og lýð.

“Það er auðvelt að skilja fótbrot og þann sársauka. Það er erfiðara að skilja andlegt álag -það finnur enginn annars sálarverk. En samkennd fólksins er greinileg,”  segir Axel. “og það gefast tækifæri að sýna væntumþykju og veita hlýja faðma. Í gosinu 1918 og í kjölfar Spænsku veikinnar kunni fólk þrennt: að þeigja, þrauka og þola. Nú kunnum við sem betur fer miklu fleira og getum notað það og miðlað. Og kirkjan er þarna til staðar, bæði sem stofnun og sem samfélag -fólkið sjálft.”

Í dag, á sumardaginn fyrsta, skipuleggur fólkið í sveitinni samkomu í Gunnarshólma þar sem Íþróttaálfurinn mætir og gleður börn og fullorðna. Sr. Önundur Björnsson prestur á Breiðabólsstað flytur  hugleiðingu og bæn.

Í kvöld verður helgistund í Stóradalskirkju. Þá heimsækir prestur Víkurprestakalls, sr. Haraldur M. Kristjánsson söfnuðinn með  kirkjukórnum frá Vík.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir