Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Fullt hús á U2 messu – myndir

U2 messa í Ástjarnarkirkju

U2 messan að kvöldi uppstigningardags stóðst björtustu vonir. Minni salur Haukahússins var troðfullur. Rúmlega 300 manns hlýddu á fagran söng Ástjarnarkórsins, Svenna Þórs og Regínu Óskar. Hljómsveit Hjartar Howser spilaði melódíur U2 undir og prestarnir lögðu inn Guðs orðið. Spilað var myndband með viðtali við Bono og af tónleikum sveitarinnar.

Undir lokin leiddi sóknarnefndarfólk almenna kirkjubæn fyrir fátækum, kúguðum, arðrændum og fyrir ríkistjórnum allra landa. Beðið var fyrir réttlæti og jöfnuði. Söfnuðurinn fagnaði tónlistinni vel með kröftugu lófataki.

Upp úr samskotabauki við útganginn komu um það bil 54.000 krónur og margir fóru heim með reikningsnúmer Hjálparstarfs kirkjunnar því allt féð rennur til innanlands og utanlands aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar. Ágóði guðsþjónustunnar verður því ekki bara ánægja og blessun þeirra sem nutu, hún brauðfæðir íslenskar og afrískar fjölskyldur. Takk fyrir framlagið.

Helga Þórdís Guðmundsdóttir útsetti tónlistina en fimm textar Bono voru þýddir af sr. Gunnari Sigurjónssyni og var þetta frumflutningur á Íslandi. Helgu og sr. Gunnari eru færðar sérstakar þakkir fyrir framlag þeirra til þessa vel heppnaða kvölds.


Nánar

Myndir frá U2 messunni

Deila fréttinni


Nýjar fréttir