Síðasta vika var sérstaklega helguð svonefndu Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, og eru Hjálparstarf kirkjunnar og kærleiksþjónustusvið Biskupsstofu aðilar þar að. Stofnanir samfélagsins og félagasamtök eru hvött til að vekja athygli á fátækt og félagslegri einangrun og taka höndum saman í baráttunni gegn því böli.
Hinn almenni bænadagur er að venju 5. sunnudag eftir páska, hinn 9. maí n.k. Biskup Íslands hefur beðið þess að í guðsþjónustum kirkjunnar sé sérstaklega beðið fyrir þeim sem búa við fátækt og félagslega einangrun.
Eðli máls samkvæmt er þetta vandamál alla jafna hulið, biðraðirnar við matarúthlutanir hjálparstarfsins og líknarsamtaka segja sína sögu, en svo er það þau sem ýmissa hluta vegna eru einangruð og afskipt í samfélaginu, sjást ekki né heyrast. Með því að lyfta því fram í guðsþjónustu, bera það fram fyrir Guð í bæn og minna á skyldur þær og ábyrgð sem við berum til að vinna gegn böli fátæktar og félagslegrar einangrunar, erum við að leggja okkar að mörkum til vitundarvakningar sem er eitt fyrsta og mikilvægasta skrefið til bjargar.
