„Svo er löngu tímabært að þjóðkirkjan komi upp súpueldhúsi í miðbænum, í Breiðholti og í öllum úthverfum [...] Við eigum öll að vinna saman í kærleiksríkum anda, heyrðist kallað á Laugaveginum við Kirkjuhúsið í gær.
Þar var kominn fulltrúi aðgerðahóps öryrkja sem vildi brýna biskup Íslands og kirkjuna til góðra verka og kærleiksþjónustu. Hún var á leið á Austurvöll þar sem hópurinn mótmælti og vakti athygli á málstað sínum.
Við tókum þetta myndband við Kirkjuhúsið og fengum leyfi hennar til að miðla því hér.
Nánar