Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

U2 messa, gegn fátækt og óréttlæti

Hljómsveitin U2

Efnahagshrun íslensku þjóðarinnar og umræða um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um orsakir þess eru ofarlega í hugum Íslendinga um þessar mundir. Fólk spyr: Verða einhverjir dregnir fyrir dóm fyrir refsivert athæfi? Verða skuldir auðmanna bara afskrifaðar en almenningi gert að greiða sinn síðasta eyri?

Margir eru sorgbitnir og reiðir og fátækt eykst með hverjum deginum. Sumir hafa komist í þá erfiðu aðstöðu að þurfa að taka þau þungu og auðmýkjandi skref að leita til hjálparstofnanna í fyrsta sinn á ævinni með beiðni um matargjafir. 

Írska hljómsveitin U2 hefur barist af mikilli hugsjón gegn fátækt og óréttlæti, sérstaklega í þriðja heiminum. Aðalsöngvari hennar, Bono, hefur verið óþreytandi að nýta frægð sína til að tala máli þeirra við ráðamenn og ásamt félögum sínum safnað gífurlegum fjárhæðum til að bæta kjör þeirra sem verst eru settir.

Prestar og kór Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði frumflytja U2 messu á uppstigningardag kl. 20:00 í Haukaheimilinu til að lýsa samstöðu með þeim sem þjást á Íslandi. Eingöngu U2 lög verða sungin.

Regína Ósk og Svenni Þór verða gestir tónleikanna og hljómsveit skipuð Hirti Howser, Agli Rafnssyni og Haraldi Þorsteinssyni sér um undirleik. Messan er samstarfsverkefni kirkjunnar og Knattspyrnufélagsins Hauka.

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir