Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

32,5 milljónir til hjálparstarfa á Haíti

ACT tjaldbúðir á Haíti

Alls hafa safnast 32,5 milljónir króna til hjálpar – og uppbyggingarstarfa á Haíti á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar.

19.5 milljónir króna hafa safnast hjá Hjálparstarfi kirkjunnar til hjálpar- og uppbyggingarstarfa á Haítí.  Með 13 milljón króna framlagi frá Utanríkisráðuneytinu gerir þetta samtals 32.5 milljónir króna.  Fjármunum til Haítí er veitt í gegnum ACT Alliance – Alþjóðahjálparstarf kirkna sem Hjálparstarfið er aðili að. ACT hefur langa reynslu af starfi á Haítí og gjörþekkir aðstæður.

Jarðskjálftinn mikli í janúar leiddi til þess að 1.9 milljón manna misstu heimili sín og neyddust til að setjast að í búðum heimilislausra við erfiðar aðstæður. Um 1400 búðir eru í Port-au-Prince og víðar þar sem heimilislausir búa í bráðabirgðahúsnæði. Sumar þessara búða hafa verið reistar á svæðum sem nú þarf að rýma t.d. þurftu 600 fjölskyldur í Gressier suðvestur af höfuðborginni sem bjuggu á skólalóð að yfirgefa búðirnar þar sem hefja á skólastarf að nýju. Lútherska heimssambandið reisti  tjöld fyrir 270 af þessum fjölskyldum á auðri spildu nálægt heimilum þeirra sem enn eru undir rústum. Flestar götur og vegi er búið að hreinsa en mjög víða á enn eftir að hreinsa íbúðarhverfi svo fjölskyldur geti reist sér  varanlegt heimili að nýju. Hreinsunarstarf er erfitt og seinlegt.

„Það er enn von, við erum að minnsta kosti á lífi“ segir Stephan, einn hinna heimilislausu.
 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir