Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Alþjóðlegt mót Lúterskrar hjónahelgi á Laugarvatni

Merki Lúterskrar hjónahelgar

Rúmlega þrjú hundruð manns sækja alþjóðlegt mót sem hefst í dag á vegum samtaka er kallast Lútersk hjónahelgi. Samtökin halda námskeið eða hjónahelgar reglulega þar sem hjón taka frá tíma til að rækta samband sitt og gera gott hjónaband betra.
 

Á mótinu um helgina mun Hafliði Kristinsson fjölskyldu- og hjónabandsráðgjafi fjalla um samskipti og tjáningu við lausn ágreiningsmála og Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur fjallar um fyrirgefninguna. Að auki verður unnið í hópum og ýmislegt gert til skemmtunar.
Lútersk hjónahelgi eru alþjóðleg samtök sem hafa starfað hér á landi í um rúma tvo áratugi. Íslendingar voru þeir fyrstu af Norðurlandaþjóðunum sem hófu þetta starf en nú eru starfandi samtök víðar á Norðurlöndum að sögn sr. Magnúsar Björns Björnssonar, eins af forsvarsmönnum samtakanna hér á landi. 
 
Alls taka 119 hjón þátt í mótinu um helgina og 85 börn, en sérstök barnadagskrá er starfrækt allan tímann.
 
Sr. Magnús Björn segir að starfið með Lúterskri hjónahelgi sé afar gefandi og iðulega sé það svo að þau sem hafi kynnst því vilji kynna það fyrir sem flestum því að menn finni hve gott það sé.
 
Vefsíða mótsins

Deila fréttinni


Nýjar fréttir