Á Jónsmessu, miðvikudaginn 23. júní, verður messa í Hallgrímskirkju kl. 23. Séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og djáknunum Magneu Sverrisdóttur og Rósu Kristjánsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir messusönginn. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson.
Árdegismessan verður að venju í kirkjunni klukkan átta að morgni. Þar þjónar Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Þorsteinn R. Guðlaugsson flytur hugvekju, Birna Gunnarsdóttir fer með bæn, Grétar Einarsson er forsöngvari og Vilhjálmur Grímsson aðstoðar við útdeilingu. Morgunverður á eftir messunni í safnaðarsalnum verður í umsjá Sigrúnar V. Ásgeirsdóttur.
