Um 50 manns tóku þátt í helgigöngu á Krosshólaborg fyrir skömmu. Gengið var að Auðartóft og Hvammskirkju og hugað að írskum rótum kristni á Íslandi, meðal annars Auði djúpúðgu og heilögum Kólumkilla. Myndskreytta frásögn er að finna á vef Dalaprestakalls.
