Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Gildin á Þjóðfundinum 2009 á bók

Gunnar Hersveinn.

Gildin sem valin voru á Þjóðfundinum 2009 verða viðfangsefni bókar sem Skálholtsútgáfan gefur út í haust.  Útgáfan hefur gert samning við Gunnar Hersvein rithöfund og heimspeking um að skrifa verkið.

Gildin sem fjallað verður um voru ekki valin af höfundi bókarinnar, útgáfunni eða hagsmunasamtökum,
heldur af visku fjöldans þar sem hver og einn stóð jafnfætis á Þjóðfundinum í Laugardalshöllinni 14. nóvember 2009. Bókin á að nýtast einstaklingum, hópum og fyrirtækjum sem vilja efla þessi gildi með sjálfum sér eða til að breyta samfélaginu.

Tólf gildi nutu mest fylgis meðal tæplega 1500 þjóðfundarfulltrúa. Heiðarleiki var það gildi sem flestum fannst mikilvægast fyrir samfélagið. Þar á eftir kom jafnrétti, virðing og réttlæti. Því næst kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði. Fjölskyldan, jöfnuður og traust voru einnig ofarlega á blaði.
Þá mun hófsemdin koma við sögu í bókinni.

 Gunnar Hersveinn hefur m.a. skrifað bækurnar Gæfuspor – gildin í lífinu (JPV 2005), og Orðspor – gildin í samfélaginu  (JPV 2008).  Hann fékk nýlega viðurkenningu Fjölís frá Rithöfundasambandi Íslands fyrir ritstörf.
 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir