Sunnudaginn 27. júní nk. kl 14 minnast Kjalnesingar þess að samkvæmt Landnámu stóð vagga kristinnar trúar á Kjalarnesi þar sem Örlygur Hrappson byggði fyrstu kirkju á Íslandi.
Í tilefni þess verður helgistund að Esjubergi sem dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur og sr. Gunnþór Ingason, sérsþjónustuprestur á sviði þjóðmenningar, stýra. Að henni lokinni bjóða sögufélagið Steini og sóknarnefnd Brautarholtssóknar til kirkjukaffis í Klébergsskóla.
Dr. Gunnar Kristjánsson flytur hugleiðingu þar sem hann horfir til sögunnar, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir segir frá Örlygi Hrappssyni frá Suðureyjum, sr. Gunnþór Ingason fjallar um heilagan Patrek, postula Írlands og Þórarinn Þórarinsson um Hof í Kjalnesingasögu. Tónlistarflutningur verður í umsjón Guðlaugs Viktorssonar og Eggerts Pálssonar. Allir eru velkomnir.
