Vinafélag Krýsuvíkurkirkju gengst fyrir stuttri en táknrænni helgistund í Krýsuvík að kvöldi Jónsmessu 24. júní kl. 20. Sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhallur Heimsson stýra henni við grunn Krýsuvíkurkirkju.
Krýsuvíkurkirkja brann 2. janúar síðastliðinn. Í tilkynningu frá vinafélagi Krýsuvíkurkirkju varðandi helgistundina segir: “Eftir helgistundina verður farið í stutta göngu um Krýsuvíkurtorfuna undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar og boðið síðan í kvöldkaffi í Sveinssafni, húsi málarans. Þar stendur yfir nýopnuð málverkasýning, sem nefnist: ,,Charlottenborgarárin.”
Helgistundin og kvöldgangan í Krýsuvík á Jónmessu miða að því að viðhalda helgihaldi í Krýsuvík þrátt fyrir kirkjubrunann. Undirbúningur að byggingu nýrrar kirkju í Krýsuvík gengur vel og standa vonir til að hún verði vígð í sumarbyrjun 2012. Jónsmessan er tengd nafni Jóhannesar skírara og er fæðingarhátíð hans. Þá eru nákvæmlega sex mánuðir til aðfangadags jóla og sól hátt á lofti á norðurslóðum.
Velunnarar og vinir Krýsuvíkurkirkju eru hvattir til að taka þátt í helgistund og kvöldgöngu í Krýsuvík á komandi Jónsmessu. Allir eru velkomnir.”
