Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Ísland sem fyrirmynd og Ísland sem lexía

Við höfum séð gjá myndast milli efnahagskerfis og samfélags manna í heiminum, segir Peter N. Prove, sem er í forsvari fyrir mannréttindastarf Lútherska heimssambandsins. Þetta hefur haft djúpstæð áhrif. Vandinn hér á Íslandi er dæmi um þetta og hér á landi getur að líta afleiðingar þessarar gjár, afleiðingar ábyrgðarleysis og skorts á siðferðisramma. Hann bætir við: Við teljum að það sem hefur gerst á Íslandi feli í sér mikilvægan lærdóm fyrir Íslendinga og fyrir fólk um allan heim.

Prove er annar aðalfyrirlesarinn á málþinginu Vorar skuldir sem verður haldið í Neskirkju 7. júní kl. 13. Nánar má lesa um málþingið á http://kirkjan.is/frett/2010/05/10509.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir