Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Menningarstundir í Þorgeirskirkju

Birkilauf í norskum skógi - mynd: Sigurður Árni Þórðarson

Menningarstundir þrjár verða í Þorgeirskirkju við Ljósavatn í sumar og
eru þær styrktar af menningarráði Eyþings. Fyrsta stundin verður á
Jónsmessu 24. júní kl. 22.00 og fjallar hún um náttúruna í kring í tali og tónum.

Önnur stundin verður sunnudagskvöldið 18. júlí kl. 21.00 og mun hún
fjalla um sögu staðarins.  Þriðja stundin verður 5. september kl.
20.00 en þar verður áhersla lögð á íslensku sauðkindina.  Umsjá verður í höndum sr.
Bolla Péturs Bollasonar sóknarprests í Laufásprestakalli og Sigrúnar
Mögnu Þórsteinsdóttur organista í Akureyrarkirkju. Allir eru velkomnir
og aðgangur ókeypis.

Sjá www.laufasinn.is
 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir