Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Ný lög – nýtt form hjónavígslu

Hringar og Biblía - mynd af vef sænsku kirkjunnar

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent prestum til reynslu nýtt form fyrir hjónavígslu og tekur það mið af nýjum hjúskaparlögum sem taka gildi n.k. sunnudag.

Í bréfi til presta sagði biskup meðal annars:

Svo sem greint hefur verið frá hafa kenningarnefnd og helgisiðanefnd sem og biskupafundur fjallað um það með hvernig þjóðkirkjan geti mætt því að grunnskilgreining hjúskapar breytist að lögum og öðrum sambúðarformum er veitt aðild að hjúskapnum. Það hjónavígsluform sem hér fylgir var afrakstur þeirrar vinnu. Er það byggt á formi fyrir staðfesting samvistar sem Kirkjuþing 2007 staðfesti og samræmt hinum nýju hjúskaparlögum. Eins var tekið tillit til þeirra hugmynda sem prestastefna 2005 varpaði fram varðandi atferli við hjónavígslu. Þetta er tilraunaform sem síðan verði tekin til endurskoðunar uns Kirkjuþing staðfestir það væntanlega á hausti komanda.

Löng og erfið deila hefur verið um þetta mál innan kirkjunnar, með þungum rökum á báða bóga, heitum tilfinningum og talsverðum þrýstingi. Nú eru þáttaskil og það er engum vafa  undirorpið að prestar þjóðkirkjunnar fara að lögum í þessu efni eins og öðrum. 

Þjóðkirkjan vill standa með hjónabandinu og þeim sem staðfesta ráð sitt og gangast undir skuldbindingar um virðingu, ást og tryggð. Enda er hjónabandið elsta stofnun mannlegs samfélags og sú sem best hefur reynst til að hlynna að viðkvæmustu og dýrmætustu þáttum þjóðfélags og menningar: tryggð og trúfesti, kærleika, umhyggju og uppeldi. Mörg hjónabönd og fjölskyldur eru um þessar mundir undir miklu álagi vegna óvissu um afkomu og atvinnu. Við biðjum fyrir þeim og heimilum þessa lands um blessun Guðs sem lífið gefur, verndar og nærir.

Hjónavígsluformið

 

Fylgiskjöl Stærð
Hjónavígsla. Form til reynslu(2).pdf 135.95 KB

Deila fréttinni


Nýjar fréttir