Við höfum mikla reynslu í Lh af því að fást við fjárhagsleg áföll og krísur, segir Martin Junge, verðandi framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins. Hann bætir við: Við höfum fjallað mikið um ólögmætar skuldir og viljum deila þeirri reynslu með Íslendingum og íslensku kirkjunni. Við viljum skoða áskorunina sem felst í núverandi aðstæðum og viljum ræða spurninguna: Hvernig eigum við að lifa saman í hnattvæddum heimi?
Junge er annar aðalfyrirlesarinn á málþinginu Vorar skuldir sem verður haldið í Neskirkju 7. júní kl. 13. Nánar má lesa um málþingið á http://kirkjan.is/frett/2010/05/10509.