Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Réttlæti, umhyggja og reisn í hnattvæddu markaðssamfélagi

Þegar við höfum skoðað skuldavanda þjóða hefur það alla jafna tengst þjóðum á suðurhveli jarðar. Það setur málin í ákveðið pólitískt samhengi, segir Peter N. Prove, sem er í forsvari fyrir mannréttindastarf Lútherska heimssambandsins. Hann bætir við: Á Íslandi er um að ræða skuldavanda þjóða á norðurhveli jarðar. Það gefur okkur skarpari fókus á spurningar um réttmæti og réttlæti.

Martin Junge, verðandi framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins bætir við: Samfélag kirknanna byggir á réttlæti, umhyggju og reisn fólks. Við erum komnir hingað til að sýna samstöðu, deila reynslu og þekkingu og til að deila þessum grunngildum með Íslendingum. Þetta eru gildi sem við teljum að verði að leggja til grundvallar í hnattvæddu markaðssamfélagi.

Prove og Junge eru aðalfyrirlesarar á málþinginu Vorar skuldir sem verður haldið í Neskirkju 7. júní kl. 13. Nánar má lesa um málþingið á http://kirkjan.is/frett/2010/05/10509.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir