Í grein sem biskup Íslands skrifar kemur fram að mikil skerðing hefur þegar orðið á sóknargjöldum, sem er tekjustofn safnaða. Frekari skerðing kæmi alvarlega niður á þjónustu safnaða, meðal annars barna- og æskulýðsstarfi og því mikla félagsstarfi sem þar fer fram.
