Tvennir tónleikar verða helgina 26. og 27. júní á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju þar sem Jessica Buzbee, básúnuleikari mun leika með Herði Áskelssyni, orgelleikara.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt. Laugardagstónleikar Jessicu og Harðar hefjast á hinum þekkta sálmforleik J.S. Bach Vakna, Síons verðir kalla. Síðan hljóma meðal annars verk úr Buxheimer orgelbókinni frá 15. öld og Morceau Symphonique eftir Guilmant. Á efnisskrá sunnudagsins bætast við verk eftir Gardner Read, J.S. Bach sem og verkið Signing eftir Huga Guðmundsson.
Jessica Buzbee nam básúnuleik í Svíþjóð, Frakklandi og Chicago og hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir frábæran árangur. Jessica starfar nú sem básúnuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hörður Áskelsson hefur verið organisti og kantor Hallgrímskirkju allt frá því hann lauk framhaldsnámi í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1982. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs kirkjunnar og stóð meðal annars að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju, Kirkjulistahátíðar og Alþjóðlega orgelsumarsins. Sem organisti hefur Hörður komið fram víða um heim og hann hefur hlotið margs háttar viðurkenningu fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á Íslandi.
Hádegistónleikar verða laugardaginn 26. júní kl. 12 og er miðaverð 1.000 kr.
Síðdegistónleikar verða sunnudaginn 27. júní kl. 17 og er miðaverð 1.500 kr.
Félagar í Listvinafélagi Hallgrímskirkju fá frítt inn.
