Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Daglegt brauð og lútherska kirkjan – yfirlitsræða forseta LH

LWF2010 - Mark Hanson prédikar - ljósmynd: Erick Coll - http://www.flickr.com/photos/52081154@N06/4815059252/

Það er þrenging í heiminum þegar lútherskar kirkjur koma saman til heimsþingsins í Stuttgart, sagði Mark Hanson biskup, forseti Lúterska heimssambandsins (LH), í  yfirlitsræðu sinni við upphaf þingsins. „Stríð geisa, sköpunin stynur undan neysluþunga okkar, flóttafólk leitar skjóls, þau sem hafa ekki aðgang að hreinu vatni og heilsugæslu eru ofurseld veikindum og dauða.“

„Þið komið öll með bænir og áköll fólksins ykkar hingað til Stuttgart,“ sagði Hanson við þátttakendur í þinginu sem eru um það bil þúsund. „Fjöldi fólks lifir án þess að hafa sitt daglega brauð en við söfnumst hér saman í trausti þess að Guð hefur ekki yfirgefið fólk sitt eða sköpun sína.“

„Kristið fólk sem tilheyrir hinni lúthersku kirkjuhefð mynda samfélag í kirkjunni, samfélag sem byggir vissulega á sameiginlegum rótum en snýst ekki um að slá vörð um eigin sjálfsmynd og eigið líf. Lútherska kirkjan sér köllun sína í því að snúa sér að heiminum sem Guð elskar, í staðinn fyrir að vera kengboginn inn í sig sjálfa,“ sagði Hanson. 

Hann tilgreindi þrjú atriði sem tengjast lífi kirkjunnar í samfélagi við hverja aðra og Lh þarf að einbeita sér að í náinni framtíð. 

  1. Hið fyrsta snýr að leiðtogum kirkjunnar. LH styður eindregið að konur sem karlar fái að þjóna sem vígðir leiðtogar kirkjunnar. Mikið verk er þó óunnið á því sviði. 
  2. Annað atriðið lýtur að samtalinu innan kirkjunnar og því hvernig ákvarðanir eru teknar. Ákvarðanir sem teknar eru innan einnar kirkju hafa áhrif á líf annarrar.
  3. Þriðja atriðið snýr að því hvernig hægt er að næra og styrkja samfélagið sem er til staðar og tryggja sjálfbærni þess í fyrirsjáanlegri framtíð.

Lútherska kirkjan hvílir á eftirfarandi grundvallaratriðum og allt líf LH tekur mið af þeim: 

  • Fagnaðarerindið sem boðar manneskjunni frelsi og lausn
  • Náðarmeðul skírnar og kvöldmáltíðar
  • Samhengi staðar og stundar
  • Samfélag kirkjunnar og mannlífsins
  • Díakónían og þjónustan við manneskjuna
  • Samstarf og samtal við aðrar kristnar kirkjudeildir

Lútherska heimssambandið eru samtök 140 kirkna út um allan heim. Frá 1947 hefur LH starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing LH og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

Nánar á vef heimsþingsins …

Deila fréttinni


Nýjar fréttir