Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Fegurð og reisn náungans er brauðið sem nærir okkur

Að gefa og þiggja brauð af hvert öðru snýst ekki bara um efnisleg gæði heldur um mannvirðingu, sagði erkibiskupinn af Kantaraborg, dr. Rowan Williams í aðalfyrirlestri heimsþingsins í Stuttgart í morgun. Hann fjallaði í erindi sínu um þema þingsins í Stuttgart og  þýðingu þess  fyrir kirkjuna sem samfélag gagnkvæmrar næringar.

Brauð heiðarleikans

Bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“ opnar augu okkar fyrir því að við erum hvert öðru háð og viðkvæm, hún opnar okkur fyrir því sem við getum þegið frá Guði og frá hvert öðru.  Þetta á við í lífi kirkjunnar og samfélagsins alls. 

Hungrið eftir brauði lífsins beinir okkur að gjöfum náungans, sem stundum verður að brauði heiðarleikans sem segir sannleika um okkur sem er óþægilegur að heyra. Kirkja sem vex í Kristi er tilbúin að taka á móti þesskonar gjöfum í þolinmæði og með þakklæti.

Óöryggi fyrirgefningarinnar

Næsta bæn í Faðir vorinu fjallar um fyrirgefninguna, þar sem við þiggjum gjöfina sem felst í því að vera fyrirgefið.  Sú sem biður um að vera fyrirgefið lætur af hendi forréttindin sem felast í því að hafa rétt fyrir sér, því hún viðurkennir að hana hungrar eftir lækningunni sem felst í því að vera viðurkennd í samfélagi við aðra manneskju. Á sama hátt stígur sú sem fyrirgefur út úr öruggu rými þess sem er brotið á og tekur áhættuna á því að stofna til sambands við aðra manneskju, sem hefur áður leitt til og getur aftur leitt til sársauka. 

Hungrið eftir fyrirgefningu og hungrið eftir brauði er það sem gerir okkur mannleg. Manneskjan sem er opin fyrir öðrum með því að gefa og þiggja, upplifir snertingu Guðs og öðlast frelsi frá óttanum um eigin ímynd og eigið öryggi. 

Samfélag gagnkvæmrar næringar

Margar hættur leynast fyrir okkur sjálf og fyrir kirkjuna þegar kemur að því að veita – og þiggja – næringu, andlega sem efnislega. Ef kirkjan gleymir sér í eigin deilum sendir hún skilaboð um að hún hirðir ekki um þarfir eða gjafir náungans. Við getum gleymt okkur í endalausri iðjusemi í þjónustunni við aðra en vanrækt okkar eigið hungur og fátækt. Óaðfinnanlegt helgihald kemur ekki staðinn fyrir að við umbreytum samfélagi okkar í samfélag gagnkvæmrar næringar. Þannig samfélag á kirkjan að vera. Ef látum staðar numið við grundvallarréttindi manneskjunnar, missum við af fegurð hennar og reisn – en í því er brauðið sem nærir okkur fólgið. 

„Gef oss í dag vort daglegt brauð“ er bæn um að Kristur verði næring okkar, svo við mættum sigrast á öllu því sem lætur okkur lifa á kostnað náungans. Hún er bæn um að kirkjan geti sannarlega verið líkami Krists, sá sem nærir heiminn.

Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima.  Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

Nánar

Vefur heimsþingsins

Myndir frá fyrirlestri Williams

Deila fréttinni


Nýjar fréttir