Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Frá fordæmingu til sátta – Iðrunarmessa

Í dag var haldin Iðrunarmessa á heimsþingi LH í Stuttgart. Messan markar þáttaskil í samstarfi lútherskra kirkna og Mennoníta. Afrakstur af áralöngu samtali á LH og samtaka Mennoníta er yfirlýsing sem heimsþingið í Stuttgart tekur undir. Þar er margskonar ofbeldi og ofsóknir í garð kristinna endurskíranda harmað og fyrirgefningar beðist af kristnum systrum og bræðrum fyrir þátt lúthersku kirkjunnar í því. 

Iðrunarmessan er einn af hápunktum þingsins í Stuttgart. Sorg og iðrun yfir því skaðlega í sögu okkar eigin kirkju var tjáð í lestrum, bænum og söng. Í messunni var borið fram ákall um fyrirgefningu fyrir það sem skaðaði sköpunina af völdum Guðs eigin kirkju. Þetta ákall og svar Guðs um endurnýjun og upprisu var tjáð með snertingu þar sem þátttakendur teiknuðu með olíuvættum fingri krossmark á handarbak sessunautar síns með orðunum: „Guð gefur þér nýtt hjarta og nýjan anda.“

Auk þingfulltrúa tók stór sendinefnd Mennoníta þátt í Iðrunarmessunni. Hún hófst með því að þátttakendur gengu til kirkju syngjandi „Veni Sancte Spiritus“ – Kom heilagur andi. Í messunni heyrðum við frásögur af sársaukafullum samskiptum ólíkra trúarhefða út frá reynslu kristinna bræðra og systra frá Mennoníta- og endurskírendakirkjum í gegnum aldirnar.  Sungnir voru sálmar frá lúthersku hefðinni og mennonísku hefðinni frá ólíkum heimshornum.

Mikilvægi Iðrunarmessunnar og yfirlýsingar LH um sáttargjörð við Mennoníta liggur í köllun kirkjunnar til að horfast í augu við sína eigin sögu og eigin afbrot og ofbeldi. Vöxtur og frelsi í Kristi á sér ekki stað án þess að gert sé upp við það sem hefur skaðað okkur sjálf og aðra í augum Guðs af okkar eigin völdum. Iðrun og fyrirgefning beinir okkur til framtíðar og losar um fjötra fortíðar.

Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima.  Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

Nánar

Myndir frá Iðrunarmessunni

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir