Á morgun hittast fulltrúar frá 140 lútherskum kirkjum frá öllum heimshornum í Stuttgart í tengslum við heimsþing Lútherska heimssambandsins (Lh). Yfirskrift þingsins er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Bænin er skoðuð út frá þörfum hverrar manneskju fyrir öryggi og næringu í sínu eigin samhengi, ábyrgð okkar gagnvart hvert öðru og sköpuninni allri og fyrirheiti Guðs um líf í fullri gnægð. Daglegt brauð birtist í ólíkum myndum eftir því hvar á jörðinni við erum og baráttan fyrir því sömuleiðis.
Í samræmi við lútherska hefð er daglegt brauð skilið sem hvaðeina sem við þurfum í daglegu lífi okkar á jörðinni. Ekki bara mat og drykk heldur hluti eins og heilsu, félagsskap, virðingu, gott veður og frið.
Um leið og við íhugum bænina um daglegt brauð erum við minnt á það sem ógnar velferð manneskjunnar. Ójöfnuður og misnotkun koma í veg fyrir að allir fá það daglega brauð sem þeir þurfa. Köllun kirkjunnar í dag er að sinna þeim sem líða vegna óréttlætis eða erfiðleika af náttúrulegum völdum, og vera þannig farvegur fyrir náð Guðs til allra sem lifa.
Lútherska heimssambandið
Lh er sameiginlegur vettvangur lútherskra kirkna sem var stofnaður árið 1947 til að halda utan um hjálparstarf og uppbyggingu í Evrópu eftir hörmungar seinni heimstyrjaldarinnar, ekki síst aðstoð við flóttafólk frá stríðshrjáðum svæðum.
Í gegnum árin hefur aðstoð og uppbygging samfélaga haldist sem meginviðfangsefni LHS en auk þess hefur það stutt við sjálfsmynd lútherskra kirkna um allan heim með guðfræðilegri uppbyggingu. Mannréttindi og jafnrétti eru fyrirferðamikil í stefnuskrá LHS sem og samvinna ólíkra kirkjudeilda og trúarbragða að auknum skilningi og gagnkvæmri virðingu.
Heimsþingið er vettvangurinn þar sem helstu mál sambandsins eru leidd til lykta og kosið er í nefndir og ráð sem halda utan um starfið til næstu sjö ára. Þingið er líka lifandi líkami sem lifir í samfélagi um orð Guðs og næringuna af samfélaginu hvert við annað.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.