Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Guð, gróður og grill á Nónholti

Mosi í hrauni - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Næsta sunnudag 18. júlí er komið að árlegri sameiginlegri messu nágrannasóknanna þriggja, Árbæjar, Grafarholts og Grafarvogs í Reykjavík. Messan er haldin á Nónholti innst í Grafarvoginum kl. 11, en Nónholtið er á mörkum sóknanna þriggja.

Hægt er að keyra langleiðina upp að lundinum eftir malarveginum hjá sjúkrahúsinu Vogi við Stórhöfða, en einnig verður farin pílagrímsferð úr kirkjunum þremur í lundinn. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl. 10 fyrir þau sem vilja ganga eða hjóla til kirkju, 10:00 frá Grafarvogskirkju og 10:15 frá Guðríðarkirkju.

Einnig ganga strætisvagnar númer 15 og 18 um Vesturlandsveg og stansa við Viðarhöfða, en þaðan er stutt niður í voginn. Prestar Guðríðarkirkju séra Sigríður Guðmarsdóttir og séra Karl V. Matthíasson þjóna og kór Guðríðarkirkju sér um forsönginn, en fulltrúar frá Grafarvogi og Árbæ lesa ritningarlestra. Sungnir verða léttir og skemmtilegir sálmar, söfnuðir mætast og almættið lofað í sköpunarverkinu. Og svo verður drukkið kaffi og  grillaðar pylsur í boði Grafarholtssóknar.

Nónholt er gróðursæll skógarlundur stutt frá Vogi og er úr lundinum fagurt útsýni yfir Grafarvoginn. Nónholt tilheyrði lengst af landi jarðarinnar Grafarholt, en hjónin Ágúst Jóhannesson og Ísafold Jónsdóttir eignuðust það árið 1953. Nónholt var í þeirra eigu til ársins 1980 og á þeim tíma komu þau upp fögrum garði í kringum sumarhús sitt þar, Brekku.  Sumarhúsið var rifið fyrir alllöngu en grunnurinn stendur enn og mun þjóna sem besta kirkjugólf  í hitabylgjunni á sunnudaginn.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir