Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hið íslenska biblíufélag 195 ára

Biblía á altari

Hinn 10. júlí næstkomandi fagnar Hið íslenska biblíufélag 195 ára afmæli. Stofnfundur þess var haldinn fyrrnefndan dag árið 1815 á heimili sr. Geirs Vídalín, biskups, en biskupsgarður var þá að Aðalstræti 10 en það hús stendur enn. Félagið telst af þessum sökum elsta starfandi félag á Íslandi.

Allt frá stofnun hefur meginmarkmið þess verið að gera íslensku þjóðinni kleift að eignast Biblíuna á eigin tungumáli. Í upphafi 19. aldar höfðu mikil hallæri gengið yfir þjóðina og ekkert tækifæri gefist til þess að leggja fjármuni í kostnaðarsama og flókna útgáfustarfsemi um áratuga skeið. Með stofnun félagsins og öflugum stuðningi Hins breska og erlenda biblíufélags, var grettistaki lyft og þúsundum eintaka af Biblíunni og Nýja testamentinu dreift um öll héruð landsins, hvort sem um gjafir var að ræða eða til sölu.

Hin nýja þýðing Biblíunnar

Árið 2007 stóð Hið íslenska biblíufélag að útgáfu nýrrar þýðingar Biblíunnar í samstarfi við JPV- útgáfu. Var þar um að ræða sjöttu heildarþýðingu Ritningarinnar á íslensku en hin fyrsta í þeirra röð er oftast kennd við Guðbrand biskup Þorláksson. Kom hún út árið 1584 og telst til mestu þrekvirkja íslenskrar menningarsögu.

Hinni nýju þýðingu hefur verið vel tekið og nú vinnur Hið íslenska biblíufélag að því í samstarfi við útgefanda að fleiri útgáfur hinnar nýju þýðingar komi fyrir sjónir almennings og þjóni með því ólíkum lesendahópum.

Biblían á netinu

Allir Íslendingar eiga þess kost að kynna sér efni og innihald Biblíunnar á heimasíðu Biblíufélagsins, sér að kostnaðarlausu. Þar er að finna mjög aðgengilegt leitarforrit sem þúsundir manna nýta sér í viku hverri til þess að kynnast textum Biblíunnar betur. Á heimasíðunni er einnig að finna ýmsan fróðleik um félagið, starf Sameinuðu biblíufélaganna víða um heim og skýringar við bækur Biblíunnar.

Í tilefni afmælisins hefur Hið íslenska biblíufélag haslað sér völl á hinum nýja vettvangi veraldarvefsins, „facebook“, og birtir þar reglulega fréttir af félaginu ásamt ritningartextum dagsins. Geta vefnotendur skráð sig til leiks og þannig fylgst með því sem efst er á baugi hverju sinni hjá félaginu.

 

Nýr framkvæmdastjóri

Þann 1. júlí síðastliðinn tók nýr framkvæmdastjóri til starfa við félagið. Hann heitir Stefán Einar Stefánsson og er guðfræðingur að mennt. Hann tekur við af Jóni Pálssyni guðfræðingi sem starfað hefur ötullega að hinni nýju þýðingu og uppbyggingu félagsins frá árinu 1997.

Frekari upplýsingar um félagið er hægt að nálgast á vefslóðinni www.biblian.is eða með því að hafa samband við framkvæmdastjóra þess.

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir