LH stendur fyrir átaki í baráttunni við HIV/AIDS faraldurinn sem ógnar lífi og heilsu milljóna manna út um allan heim. Árlega smitast 2.7 milljónir manna af HIV veirunni. Á hverjum degi smitast 3700 fullorðnir, 2500 ungmenni og 1200 börn. Mikill meirihluti þeirra sem eru sýktir og þeirra sem deyja úr sjúkdómnum búa í Afríku sunnan Sahara.
LH hefur lengi lagt áherslu á fræðslu og ráðgjöf í samfélögum sem verða illa úti vegna sjúkdómsins. Í nýju átaki skuldbindur LH til að sinna sérstaklega fræðslu og samtali um forvarnir af öllum gerðum. Átakið ber yfirskriftina „HIV forvarnir – í þágu lífsins“ og eru kirkjur LH hvattar til að beita öllum ráðum til að bjarga lífi með því að nefna hlutina sínu rétta nafni.
HIV veiran smitast fyrst og fremst með kynmökum. Það reynist hins vegar erfitt í mörgum samfélögum að tala um kynlíf í sambandi við forvarnir gegn HIV. Kirkjurnar hafa sérstaklega átt erfitt með að horfast í augu við að neikvæðar hugmyndir um kynlíf og kynhneigð eru afar skaðlegar þegar kemur að því að berjast við HIV/AIDS.
Þar sem rétt og stöðug notkun smokksins hefur reynst áhrifaríkasta leiðin til að koma í veg fyrir HIV smit í gegnum kynmök er það hlutverk kirknanna að minna á hana í forvörnum og fræðslu. Öruggara kynlífi er lifað með því að vera trúr maka sínum, halda sig frá kynlífi alveg, og með því að nota smokkinn á réttan hátt.
Það er ekki síst ábyrg umræða um notkun smokksins í forvörnum sem átakið setur á oddinn en einnig hvatning til kirknanna að nálgast samtalið um kynlíf almennt með opnari, jákvæðari og skilningsríkari huga og hætti, þannig að trúin verði varnarþáttur í lífinu hér og nú.
Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“.
Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.